Everton hefur engan áhuga á því að selja kantmanninn efnilega Anthony Gordon þrátt fyrir áhuga frá Newcastle.
Gordon er 21 árs gamall og vann sér inn sæti í byrjunarliði Everton á síðustu leiktíð er liðið bjargaði sér frá óvæntri fallbaráttu á lokaspretti tímabilsins.
Newcastle er að leita sér að kantmanni og hefur reynt að opna viðræður við Everton um kaup á Gordon en svarið frá þeim bláu er alltaf eins: Anthony Gordon er ekki til sölu.
Líklegt er að Newcastle geri Moussa Diaby, kantmann Bayer Leverkusen, að sínu helsta skotmarki til að auka breiddina á vellinum og í hópnum.
Tottenham sýndi Gordon einnig áhuga fyrr í sumar en endaði á því að kaupa Richarlison.
Athugasemdir