Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. júlí 2022 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Fulham að ganga frá Pereira og Solomon
Mynd: Getty Images

Fulham er við það að ganga frá kaupum á Andreas Pereira miðjumanni Manchester United fyrir 13 milljónir punda.


Hinn 26 ára gamli Pereira, sem hefur spilað 75 leiki fyrir Manchester United, er sáttur með samningstilboðið og mun skrifa undir fjögurra ára samning við Fulham.

Pereira hefur gert góða hluti að láni hjá Flamengo í Brasilíu undanfarin misseri en brasilíska félagið hefur ekki efni á því að festa kaup á leikmanninum.

Fulham er einnig að fá ísraelska landsliðsmanninn Manor Solomon til liðs við sig á eins árs lánssamning frá úkraínska félaginu Shakhtar Donetsk. 

Solomon er 22 ára gamall en búinn að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður bæði hjá Shakhtar og ísraelska landsliðinu þrátt fyrir ungan aldur.

Solomon getur leikið sem kantmaður og sóknartengiliður og verður spennandi að sjá hvort hann sé nægilega góður fyrir enska boltann.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner