Haraldur Freyr: Það er bara þannig í fótbolta að mörk breyta leikjum

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík tók á móti nágrönnum sínum úr Njarðvík í dag þegar Ljósanæturleikurinn fór fram í næst síðustu umferð Lengjudeild karla.
„Gríðarlega ánægður og stoltur af strákunum" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir sigurinn í dag.
„Þeir lögðu mikið í þetta, hörku vinnuframlag og uppskera þrjú stig. Þetta var verðskuldað á endanum þó að Njarðvík hafi stýrt svona leiknum sérstaklega í fyrri hálfleik og voru voru töluvert betri en við í fyrri hálfleik"
Þetta var gríðarlega sterkur sigur fyrir Keflavík í dag en þeir halda lífi í baráttunni um sæti í umspilinu.
„Það er bara mjög sterkt en við þurfum bara að hugsa um okkur sjálfa og við eigum Selfoss í lokaleiknum. Við þurfum bara að reyna að vinna hann og sjá svo hvernig úrslit verða annarstaðar"
Mörk breyta leikjum og það var gríðarlega mikilvægt að ná fyrsta markinu hér í dag.
„Já þetta var svolítið þannig leikur og oft er það auðvitað þannig að mörk breyta leikjum. Þetta hefði getað farið allt öðruvísi ef að Njarðvík hefði skorað á undan. Það er bara þannig í fótbolta að mörk breyta leikjum"
Nánar er rætt við Harald Freyr Guðmundsson í spilaranum hér fyrir ofan.
