07.01.10 - 11:31
Hafliði Breiðfjörð
Guðmann Þórisson til Nybergssund (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Norska félagið Nybergssund tilkynnti nú í morgun að varnarmaðurinn Guðmann Þórisson sé genginn í raðir þeirra frá Breiðablik.
Guðmann sem er 23 ára gamall hafði farið tvívegis til félagsins á reynslu nú í vetur og virðist hafa heillað forráðamenn félagsins það mikið að hann skrifaði í morgun undir tveggja ára samning.
Hann hefur fengið treyju númer 5 hjá félaginu og spilar sinn fyrsta leik á föstudag þegar liðið á æfingaleik við Lilleström.
Samningur hans við Breiðablik var að renna út um áramótin og nú er ljóst að hann spilar ekki lengur hér á landi.
Guðmann hefur leikið með meistaraflokki hjá Breiðabik síðan árið 2005 en þessi 22 ára gamli leikmaður skoraði eitt mark í sextán leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

Heimild: Vefur Nybergssund