07.01.10 - 19:24
Magnús Már Einarsson
Nicky Hunt til Derby á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Derby County hefur fengið varnarmanninn Nicky Hunt á láni frá Bolton í einn mánuð.
Þessi 26 ára gamli leikmaður kemur væntanlega beint inn í stöðu hægri bakvarðar hjá Derby en hann hefur ekki fengið tækifæri hjá Bolton í vetur.
Hunt missti sæti sitt hjá Bolton þegar að Grétar Rafn Steinsson kom til félagsins í janúar árið 2008.
Hann datt síðan ennþá neðar í goggunarröðinni þegar að Sam Ricketts kom til Bolton frá Hull í sumar.
Á síðustu leiktíð var Hunt í láni hjá Bimingham í nokkrar vikur og hann hefur því reynslu af því að leika í Championship deildinni.

Heimild: Sky