Atli Barkar ekki áfram hjá Fredrikstad

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Barkason verður ekki áfram hjá Fredrikstad í norsku C-deildinni en samningur hans við félagið rann út á dögunum. <a href="https://islendingavaktin.is/tho-nokkrir-ad-leita-ser-ad-nyjum-lidum/" target="_blank">Íslendingavaktin greinir frá þessu í dag</a>.
Atli er 18 ára bakvörður en hann gerði stuttan samning við Fredrikstad síðastliðið haust eftir að hafa verið í unglinga og varaliði Norwich undanfarin ár.

Nokkur lið í Pepsi Max-deildinni eru áhugasöm um að fá Atla í sínar raðir fyrir næsta sumar, samkvæmt heimildum Íslendingavaktarinnar.
Atli lék með Völsungi í yngri flokkunum og hann spilaði nokkra leiki í 2. deildinni með Húsvíkingum áður en hann fór til Norwich árið 2017.
Atli á tíu leiki að baki með U19 ára landsliði Íslands en hann hefur einnig leikið með U16, U17 og U18 ára landsliðunum.