07.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Ilhan Mansiz til Japans (Staðfest)




Japanska liðið Vissel Kobe hefur keypt tyrkneska sóknarmanninn Ilhan Mansiz frá Besiktas á um 5.milljónir punda. Mansiz sem er 28 ára lék mjög vel með Tyrkjum á HM 2002 og sló í gegn á mótinu en eftir það hefur leiðin legið niður á við hjá kappanum og hann ekki fundið sig hjá Besiktas og með landsliðinu.
