banner
   þri 07. febrúar 2023 16:00
Elvar Geir Magnússon
Sonur Ronaldinho semur við Barcelona
 Joao Mendes og Ronaldinho.
Joao Mendes og Ronaldinho.
Mynd: Twitter
Brasilíska goðsögnin Ronaldinho greinir frá því að sonur sinn hafi gert samkomulag við Barcelona. Strákurinn heitir Joao Mendes og er sautján ára gamall.

Ronaldinho er sjálfur 42 ára í dag en hann lék listir sínar með Barcelona 2003–2008, skoraði 70 mörk í 145 leikjum og mörg af þeim stórglæsileg.

„Barcelona mun alltaf eiga stað í hjarta mínu, Barcelona er hluti af lífi mínu. Hvert sem ég fer, þá tek ég Barcelona með mér. Þar sem sonur minn er mættur verð ég meira viðstaddur," segir Ronaldinho.

Mendes kemur frá Cruzeiro í Brasilíu en hann æfði hjá Börsungum til reynslu í janúar.

Ekki fer mörgum sögrum um hæfileika Mendes, sem er sóknarmaður, en ef hann hefur eitthvað af hæfileikum föður síns gæti hann gert býsna góða hluti.
Athugasemdir
banner
banner
banner