Fotbolti.net
07.05.12 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Mads Laudrup í Stjörnuna (Staðfest)

Mads Laudrup í leik á Rey Cup í 3. flokki.

Mads Laudrup í leik á Rey Cup í 3. flokki.

Canon

Mynd: reycup.is

Stjarnan hefur fengið miðjumanninn Mads Laudrup á láni frá HB Køge en lánssamningurinn gildir í tvo mánuði.
Mads er miðjumaður sem getur bæði spilað sem framliggjandi og afturliggjandi miðjumaður.

Mads byrjaði sinn feril hjá FC Kaupmannahöfn og spilaði hann sinn fyrsta úrvalsdeildarleik með þeim aðeins 17 ára.

Alls spilaði Laudrup 5 leiki fyrir FCK áður en hann samdi við danska úrvalsdeildarliðið HB Køge í janúar 2009. Sökum mikilla hné meiðsla hefur Laudrup aðeins spilað 33 leiki fyrir HB Køge en tveir af þeim voru í síðustu viku.

Laudrup hefur spilað alls 29 leiki með öllum yngri landsliðum Dana og í flestum þeirra var hann fyrirliði. Hann gæti þreytt frumraun sína með Stjörnunni gegn Fylki á fimmtudag.

Heimild: Heimasíða Stjörnunnar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.