07.05.12 - 18:00
Hafliði Breiðfjörð
Shaneka Gordon og Andrea Ýr til ÍBV (Staðfest)

Shaneka Gordon spilar með ÍBV í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Shaneka Gordon spilar með ÍBV í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið ÍBV hefur fengið mikinn liðsstyrk nú skömmu áður en keppni hefst í Pepsi-deild kvenna því þær Shaneka Gordon og Andrea Ýr Gústavsdóttir eru gengnar til liðs við félagið.
Shaneka Gordon sem er 26 ára gömul hefur spilað í framlínu Grindavíkur undanfarin tvö ár og þykir öflugur framherji.
Hún skoraði 21 mark í 27 leikjum í deild og bikar með Grindavík á síðustu tveimur leiktíðum.
Andrea Ýr er 21 árs og kemur til ÍBV frá Breiðablik þar sem hún spilaði 14 leiki og skoraði eitt mark á síðustu leiktíð.
Andrea hafði leikið allan sinn feril með Val áður en hún fór til Breiðabliks í fyrra utan nokkurra leikja árið 2008 með Aftureldingu. Hún er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað nokkrar stöður á vellinum.
ÍBV hafði áður fengið Önnu Þórunni Guðmundsdóttur frá Grindavík og markvörðinn Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur frá Breiðablik.
Fjórir leikmenn eru farnir frá þeim, markvörðurinn Birna Berg Haraldsdóttir sem spilar ekkert í sumar vegna meiðsla, Þórhildur Ólafsdóttir fór í Þór/KA, Kolbrún Inga Stefánsdóttir tekur sér hlé frá knattspyrnuiðkun og Edda María Birgisdóttir fór á miðju sumri í fyrra til Stjörnunnar.