Fotbolti.net
07.06.04 - 09:52
Magnús Már Einarsson

Del Bosque tekur við Besiktas (Staðfest)

Del Bosque tekur við Besiktas (Staðfest)
Canon
Vicente del Bosque fyrrum stjóri Real Madrid hefur tekið við tyrkneska liðinu Besiktas. Hinn 53 ára brosmildi del Bosque var rekinn frá Real Madrid fyrir um það bil ári síðan þrátt fyrir að hafa stýrt liðinu til sigurs í La Liga. Á fjögurra ára stjóraferli sínum hjá Real Madrid stýrði del Bosque liðinu til sigurs í Meistaradeildinni tvisvar og La Liga tvisvar auk þess sem að liðið sigraði Uefa Super Cup og leikinn við Suður-Ameríkumeistaranna.
Del Bosque tekur við starfinu hjá Besiktas af Rúmenanum Mircea Lucescu sem að stýrði Besiktas í þriðja sæti tyrknesku deildarinnar á nýliðinni leiktíð og þar með mun liðið leika í Evrópukeppni Félagsliða á næstu leiktíð. Lucescu hætti hjá Besiktas fyrir skömmu til að taka við úkraínska liðinu Shaktar Donetsk.

Del Bosque mun taka með sér stóran hluta þjálfaraliðsins sem að hann var með hjá Real Madrid á sínum tíma og hefur honum verið lofað af forráðamönnum tyrkneska liðsins að hann fái að kaupa nýja leikmenn í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.