Fotbolti.net
07.06.04 - 11:41
Magnús Már Einarsson

Cocu til PSV (Staðfest)

Cocu til PSV (Staðfest)
Canon
Phillip Cocu fyrirliði hollenska landsliðsins hefur gengið til liðs við PSV Eindhoven og skrifað undir tveggja ára samning við liðið. Cocu sem að er 33 ára miðjumaður yfirgaf herbúðir Barcelona í síðasta mánuði eftir sex ára dvöl hjá félaginu.
Cocu sem að á 79 landsleiki að baki undirbýr sig nú ásamt félögum sínum í hollenska landsliðinu fyrir EM í Portúgal sem að hefst í næstu viku. Hann lék með PSV á árunum 1995 til 1998 áður en að hann gekk til liðs við Barcelona þar sem að hann skoraði 31 mark í yfir 200 leikjum en hann lék í sex ár á Spáni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.