Fotbolti.net
07.06.12 - 13:31
Daníel Freyr Jónsson

Chris Hughton ráðinn stjóri Norwich (Staðfest)

Chris Hughton ráðinn stjóri Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norwich hefur ráðið Chris Hughton sem nýjan stjóra liðsins, en þetta var staðfest á blaðamannafundi nú eftir hádegi.
Hughton kemur til Norwich frá Birmingham, en þar var hann við stjórnvölinn í eitt ár.

Hjá Norwich tekur þessi 53 ára gamli Englendingur við af Paul Lambert, sem nýverið tók við Aston Villa.

Þetta er í annað sinn sem Hughton stýrir liði í ensku úrvalsdeildinni. Hann var rekinn frá Newcastle í desember 2010 eftir að hafa stýrt liðinu upp um deild.

Hughton fær það verðuega verkefni að halda við flottum árangri Norwich, sem hafnaði í 12. sæti úrvalsdeildarinnar í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.