Fotbolti.net
07.06.12 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Niko Kranjcar til Dynamo Kiev (Staðfest)

Niko Kranjcar til Dynamo Kiev (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Úkraínska félagið Dynamo Kiev hefur keypt miðjumanninn Niko Kranjcar frá Tottenham.
Þessi 27 ára gamli Króati hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Tottenham síðan hann kom til félagsins frá Portsmouth árið 2009.

Kranjcar hefur oft verið orðaður við önnur félög en hann hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning við Dynamo Kiev.

Kranjcar segir að það sé erfitt að yfirgefa herbúðir Tottenham. ,,Félagið skipar stóran sess hjá mér. Þetta hefur verið frábært,\" sagði Kranjcar.

Heimild: Fox

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.