Fotbolti.net
07.06.12 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Rodrigo Palacio kominn til Inter (Staðfest)

Rodrigo Palacio kominn til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter er búið að staðfesta kaup á argentínska framherjanum Rodrigo Sebastian Palacio, en hann er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið.

Enrico Preziosi, forseti Genoa, tilkynnti fyrir nokkrum vikum að félögin hefðu komist að samkomulagi um kaupverð á hinum þrítuga Palacio og nú er hann loksins búinn að skrifa undir.
Palacio hefur verið í herbúðum Genoa í þrjú ár en hann kom til félagsins frá Boca Juniors árið 2009.

,,Sóknarmaðurinn hefur skrifað undir þriggja ára samning við FC Internazionale, samningurinn mun renna út 30. júní 2015,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu Inter.

Palacio skoraði 41 mark í 100 leikjum með Genoa á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.