Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag þar sem stórleikur KR og Víkings R. verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Liðin mætast í úrslitaleik um Meistara meistaranna. KR vann sér inn þátttökurétt með að vinna Íslandsmótið í fyrra á meðan Víkingur R. vann Mjólkurbikarinn.
Mikil eftirvænting er fyrir leikinn. Lið Víkinga þykir afar sterkt í ár en KR-ingar eru einnig með öflugan leikmannahóp. Úrslitaleikurinn verður síðasti leikur dagsins og hefst klukkan 19:15.
Breiðablik og HK mætast í fyrsta leik dagsins á Kópavogsvelli. Um er að ræða æfingaleik þar sem allur ágóði af miðasölu rennur til Mæðrastyrksnenfdar Kópavogs.
Þá eru níu leikir á dagskrá í Mjólkurbikar karla og þrír í kvenna.
Meistarar meistaranna
19:15 KR-Víkingur R. (Stöð 2 Sport - Meistaravellir)
Mjólkurbikar karla
14:00 KFB-Víðir (Bessastaðavöllur)
14:00 Samherjar-Nökkvi (Hrafnagilsvöllur)
14:00 KFR-GG (SS-völlurinn)
14:00 Tindastóll-Kormákur/Hvöt (Sauðárkróksvöllur)
14:00 SR-Uppsveitir (Eimskipsvöllurinn)
14:00 Ísbjörninn-Björninn (Kórinn - Gervigras)
16:00 Stokkseyri-Afríka (Stokkseyrarvöllur)
17:00 Árborg-Augnablik (JÁVERK-völlurinn)
19:00 Léttir-Reynir S. (Hertz völlurinn)
Mjólkurbikar kvenna
13:00 ÍR-Álftanes (Hertz völlurinn)
14:00 Hamar-ÍA (Grýluvöllur)
16:00 Fjarðab/Höttur/Leiknir-Hamrarnir (Fjarðabyggðarhöllin)
Æfingaleikur karla
12:00 Breiðablik - HK (Kópavogsvöllur)
Athugasemdir