07.07.04 - 07:06
Magnús Már Einarsson
Sevilla fær Brasilíumanninn Renato (Staðfest)




Spænska liðið Sevilla hefur fengið brasilíska miðjumanninn Renato Dirnei Florencio frá Santos. Hinn 25 ára gamli Renato er núna með Brasilíska landsliðinu á Copa America en hann mun vera kynntur sem leikmaður Sevilla eftir keppnina. Ekki hefur kaupverðið á Renato verið gefið upp en hann mun hitta fyrir landa sinn Julio Baptista hjá Sevilla. Baptista sem að kom til Sevilla frá Sao Paulo á síðustu leiktíð skoraði tuttugu mörk í La Liga á nýliðnu tímabili og sló í gegn en hnan er meðal annars undir smásjá Barcelona.
Reanto er þriðji leikmaðurinn sem að Sevilla fær í sumar en hinir tveir eru sóknarmennirnir Ariza Makukula og Carlos Aranda. Þá er talið líklegt að liðið nái að klófesta Fernando Sales vængmann Real Valladolid á næstu vikum.
