07.07.04 - 11:45
Hafliði Breiðfjörð
Dominic Matteo til Blackburn (Staðfest)




Blackburn keyptu í dag varnarmanninn Dominic Matteo frá Leeds United og gerðu við hann þriggja ára samning. Leikmaðurinn er sá þriðji sem gengur í raðir Blackburn í sumar en hinir voru Paul Dickov og Javier de Pedro. Matteo sem er þrítugur er enn einn Leedsarinn sem yfirgefur félagið eftir að það féll úr deildinni í voru en áður voru farnir Alan Smith, Paul Robinson og Michael Bridges. Þá eru Mark Viduka og Ian Harte að fara einnig, sá fyrrnefndi til Middlesbrough og hinn til Spánar. Einnig er Michael Duberry að íhuga að ganga til liðs við Wolves.
