Fotbolti.net
07.08.26 - 22:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Crystal Palace lagði Fulham - Tomiyasu spilaði sinn fyrsta leik

Crystal Palace lagði Fulham - Tomiyasu spilaði sinn fyrsta leik
Canon

Mynd: Crystal Palace

Úrvalsdeildarliðin Fulham og Crystal Palace mættust í æfingaleik í kvöld.

Cesar Palacios og Gonzalo Garcia, sem gengu til liðs við Fulham frá Real Madrid í sumar, voru í byrjunarliðinu.
Antonee Robinson kom Fulham yfir eftir þriggja mínútna leik. Ismaila Sarr jafnaði metin hálftíma síðar. Það var síðan Matheus Franca sem tryggði Crystal Palace sigurinn með marki strax í upphafi seinni hálfleiks.

Takehiro Tomiyasu gekk til liðs við Crystal Palace á frjálsri sölu fyrr í dag. Hann var hjá Ajax seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa spilað með Arsenal frá 2021.

Oscar Mingueza sem gekk til liðs við Palace frá Celta Vigo í sumar lagði upp sigurmarkið.

Fulham mætir Malaga 12. ágúst og Crystal Palace mætir Freiburg 15. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.