Fotbolti.net
Jökull ræðir brottreksturinn: Virkilega vonsvikinn með vinnubrögðin

07.08.26

Jökull ræðir brottreksturinn: Virkilega vonsvikinn með vinnubrögðin

SÆBJÖRN ÞÓR ÞÓRBERGSSON STEINKE

Jökull Elísabetarson var fyrir átta vikum síðan látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar eftir að hafa starfað hjá félaginu frá haustinu 2021. Hann var í maí 2023 ráðinn sem aðalþjálfari liðsins eftir að hafa verið aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar sem þá var látinn fara. Rúmlega þremur árum seinna var Jökull svo látinn taka pokann sinn.

Stjarnan komst á gott skrið 2023 og endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar, 2024 endaði liðið í 4. sæti og rétt missti af Evrópusæti og í fyrra endaði liðið í 3. sæti.

Stjarnan var á kafla á síðasta tímabili í titilbaráttu en það fjaraði undan henni á lokakaflanum, liðið endaði 15 stigum á eftir Víkingi eftir að hafa fengið einungis tvö stig úr síðustu fimm leikjunum.

Tímabilið í ár byrjaði á tveimur sigrum, en svo fór að halla undan fæti. Fjögur töp í næstu fjórum deildarleikjum og í áttunda leik frá síðasta sigri vannst loksins annar sigur, gegn Þór. Í millitíðinni hafði bikarleikur gegn KR unnist og Stjarnan komst í 8-liða úrslit keppninnar. Undir stjórn Jökuls komst Stjarnan í 8-liða úrslit bikarsins 2023 og undanúrslit tímabilin 2024 og 2025.

Næsti leikur á eftir leiknum gegn Þór var bikarleikur gegn Aftureldingu og hann tapaðist, þar með var vonin um Evrópusæti á þessu tímabili orðin mjög lítil og tveimur dögum seinna var tilkynnt að samstarfi Stjörnunnar og Jökuls væri lokið.

Fótbolti.net ræddi við Jökul um tímann í Garðabænum og brottreksturinn sjálfan.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.