07.08.26 - 21:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi: Þá væri hún örugglega að spila í bandarísku úrvalsdeildinni
Auglýsing

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emma Nicole Phillips.

„Tilfinningin er mjög góð heilt yfir. Mér fannst við frábærar í 30 mínútur í fyrri hálfleik og það var gaman að sjá hversu góðar við getum verið. Þetta var með því betra sem við höfum sýnt í sumar," sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, eftir 4-2 sigur gegn ÍBV í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 2 ÍBV
„Þetta eru smá blendnar tilfinningar því maður er svo hungraður og gráðugur. Ég hefði viljað hafa þetta lengra. Við byrjuðum leikinn illa og ótrúlega ánægður með stelpurnar að ná að snúa því við. En þessi seinni hálfleikur, mér fannst þetta smá lélegt í minningunni."
ÍBV komst yfir eftir átta mínútur en svo tók Grindavík/Njarðvík gjörsamlega öll völd á vellinum og komst í 4-1. Emma Nicole Phillips sem er vanalega miðvörður skoraði öll fjögur mörkin en hún lék fremst á vellinum í dag.
„Þetta er ekkert miðvörður, þetta er sóknarmaður af guðs náð," sagði Gylfi léttur. „Hún veit það bara ekki sjálf. Ef hún myndi fatta það þá væri hún örugglega bara að spila í bandarísku úrvalsdeildinni. Við prófuðum þetta oft í Lengjudeildinni í fyrra og það svínvirkaði þá. Við höfum prófað þetta tvisvar, þrisvar í sumar og þetta hefur ekki virkað. Fyrir leik bað ég liðið eiginlega afsökunar því þetta hefur ekki gengið. 'Stelpur mig langar að prófa þetta einu sinni enn. Þetta á að virka'. Þetta var eiginlega galið, fjögur mörk á 20 mínútum."
„Hver á að ráða við hana? Ég veit það ekki."
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.