Fotbolti.net
07.09.04 - 16:59

Heinze loksins kominn til Man. Utd

Loksins kominn í United treyjuna

Loksins kominn í United treyjuna

Canon
Argentínski varnarmaðurinn Gabriel Heinze er loksins kominn til Manchester United. Hann kom í morgun til æfinga í fyrsta skipti en hann var keyptur til liðsins fyrir þremur mánuðum síðan fyrir um 7 milljónir punda frá Paris St. Germain.
Hann hefur misst af sex fyrstu keppnisleikjunum með United auk undirbúningstímabilsins. Hann var fyrst á Copa America og svo á Ólympíuleiknum með landsliði sínu.

"Staða mín er ekki einföld. Stjórnarmenn liðsins eru pínu pirraðir en ég gerði alltaf það sem mér fannst rétt og þeir munu verða stoltir af því að hafa gullverðlaunahafa í liðinu sínu" sagði Heinze en Argentínumenn urðu Ólympíumeistarar.

Hann hefur misst af fjórum leikjum í úrvalsdeildinni og tveimur leikjum í forkeppni Meistaradeildarinnar og spilað ansi mikið í sumar. Hann spilaði alla leikina bæði í Copa America og á Ólympíuleiknum enda komst liðið í úrslit í báðum keppnum. Auk þess spilaði hann svo með Argentínu gegn Perú á laugardaginn en er nú loksins kominn til Manchester.

"Sumir segja að ég hafi gert rangt aðrir segja að ég hafi gert rétt. En ég mun aldrei segja "nei" við Argentínu. Ég neita því að ég eigi í slæmu sambandi við United. Ég vil svara fyrir mig á vellinum. Ég ætla að sína að ég geti staðið mig í úrvalsdeildinni. Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir Manchester United."

Sjá einnig:
Heinze til Man Utd (Staðfest)
Sir Alex: Henze spilar jafnvel aldrei fyrir United!
Heinze pirrar Alex gamla enn frekar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.