Hinn 17 ára gamli Eduardo Camavinga skoraði frábært mark í 7-1 sigri Frakklands á Úkraínu er liðin mættust í vináttulandsleik í kvöld en þetta var fyrsta mark hans fyrir landsliðið.
Camavinga þykir eitt mesta efni Frakklands en hann lék fyrsta A-landsleikinn í síðasta mánuði og var þar með yngsti leikmaðurinn í 106 ár til að spila fyrir Frakkland.
Hann minnti svo aftur á sig í sigri Frakklands í kvöld er hann skoraði fyrsta mark sitt með bakfallsspyrnu snemma leiks.
Camavinga er jafnframt yngsti leikmaðurinn í meira en 100 ár til að skora fyrir Frakkland en hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Sjáðu markið með því að smella á tengilinn
Athugasemdir