07.11.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Enckelman lánaður til Blackburn. (Staðfest)

Enckelman fær mark á sig.


Enckelman fær mark á sig.

Blackuburn Rovers hefur fengið markvörðinn Peter Enckelman á láni frá Aston Villa í einn mánuð. Blackburn á í markmannsvandræðum þar sem að Alan Kelly og David Yelldell eru báðir frá og því er Brad Friedel eini markvörðurinn sem er klár í slaginn hjá liðinu. Enckelman mun því væntanlega vera á varamannabekknum næsta mánuðinn hjá Rovers og vera klár í slaginn. Þessi finnski markvörður hefur lítið spilað með Aston Villa í vetur eftir kaupin á Thomas Sörensen í sumar og því tók hann þessu boði Blackburn.
