mán 07. desember 2020 16:08
Elvar Geir Magnússon
Umboðsmaður Pogba: Þetta er búið hjá honum hjá Man Utd
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Paul Pogba, Mino Raiola, segir að veru franska miðjumannsins hjá Manchester United sé að ljúka.

„Þetta er búið hjá honum hjá Manchester United," segir Raiola sem vill ekki segja til um hvort Pogba muni reyna að yfirgefa Old Trafford í janáurglugganum eða hvort hann klári tímabilið.

Real Madrid og Juventus hafa lengi verið orðuð við Pogba sem hefur spilað þrettán leiki í öllum keppnum á þessu tímabili.

Honum hefur gengið illa að ná upp stöðugleika síðan hann kom aftur til Manchester United.

„Ég hef aldrei upplifað svona erfiðan kafla á ferli mínum," sagði Paul Pogba í viðtali í síðasta mánuði.

Raiola segir að Pogba sé óánægður hjá Manchester United og vilji fara.

„Það er tilgangslaust að tala í kringum hlutina. Það er betra að tala hreint út, horfa fram veginn og eyða ekki tíma," segir Raiola.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner