Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 07. desember 2022 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Katrín Lilja gerir nýjan samning við Grindavík
Mynd: Grindavík
Katrín Lilja Ármannsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Grindavík og semur hún við félagið út tímabilið 2024. Katrín er tvítugur og spilar í vörninni.

Hún er uppalin hjá félaginu en lék með Sindra tímabilið 2021. Á liðnu tímabili lék hún sextán leiki í deild og bikar þegar Grindavík endaði í 7. sæti Lengjudeildinni.

„Það er mjög ánægjulegt að Katrín Lilja verði áfram hjá okkur í Grindavík. Hún er frábær liðsmaður og hefur bætt sig mikið á síðustu tveimur árum,“ sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur við undirskrift Katrínar.

„Knattspyrnudeild Grindavíkur lýsir mikilli ánægju með að ein af uppöldu leikmönnum félagsins hafi samið við félagið til næstu ára. Frekari frétta af leikmannamálum meistaraflokks kvenna er að vænta á næstu dögum," segir í tilkynningu Grindavíkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner