Fotbolti.net
21.11.26 - 20:11
Ívan Guðjón Baldursson

Xabi Alonso: Ég hefði ekki dæmt víti

Xabi Alonso: Ég hefði ekki dæmt víti
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso var skiljanlega ósáttur eftir tap Chelsea á heimavelli gegn Leeds United en einn af vendipunktum leiksins var þegar Morgan Rogers fékk dæmda vítaspyrnu á sig fyrir hendi sem virtist ekki eiga rétt á sér.
England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli
TENGT EFNI

England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli

Flestir fótboltasérfræðingar sem horfðu á leikinn töldu ekki eiga að dæma hendi af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi lyfti Rogers handleggnum upp til að verja andlitið á sér og í öðru lagi náði engin myndavél nægilega góðu sjónarhorni af atvikinu. Boltinn virtist fara í efsta part handleggsins og óljóst hvort svæðið sem hann hæfði teljist til handleggs eða axlar.

„Ég vil ekki gera mikið mál úr þessu en að mínu viti þá er þetta mjög strangur dómur. Ég hefði ekki gefið vítaspyrnu á þetta, að mínu mati er þetta ekki víti hvort sem þetta gerist í vítateignum hjá okkur eða hinu liðinu," sagði Alonso sem vildi einbeita sér að frammistöðunni í viðtali að leikslokum.

Miðjumaðurinn öflugi Moisés Caicedo fór meiddur af velli á 22. mínútu og náði Emmanuel Emegha forystunni skömmu síðar, aðeins nokkrum mínútum áður en Noah Okafor jafnaði fyrir gestina. Leeds var sterkari aðilinn en staðan var jöfn í leikhlé og héldu gestirnir áfram að vera betra liðið í síðari hálfleik. Dominic Calvert-Lewin náði forystunni með marki úr vítaspyrnu eftir að hendi var dæmd á Rogers.

„Við misstum allan takt eftir skiptinguna og jöfnunarmarkið. Við spiluðum þokkalega vel fram að því en eftir að þeir skoruðu jöfnunarmarkið voru þeir betra liðið á vellinum. Andstæðingarnir öðluðust trú á meðan við misstum okkar trú og það breytti leiknum.

„Við réðum einfaldlega ekki við þá og komumst ekki nálægt því að skapa fleiri færi. Við verðum að finna lausnir á vandamálunum okkar, tímabilið er ennþá langt.

„Við erum mjög brothætt lið og þurfum að bæta það. Við erum andlega brothættir og eigum erfitt með að standa upp þegar við erum kýldir niður eins og gerðist í dag. Við þurfum að sýna meiri andlegan styrk."
Xabi Alonso: Ég hefði ekki dæmt víti
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.