Fotbolti.net
08.01.10 - 07:02
Magnús Már Einarsson

Kristján Örn Sigurðsson til Hönefoss (Staðfest)

Kristján Örn Sigurðsson til Hönefoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Varnarmaðurinn sterki Kristján Örn Sigurðsson skrifaði í gærkvöldi undir tveggja ára samning við Hönefoss sem vann sér sæti í norsku úrvalsdeildinni síðastliðið haust.
Kristján Örn hefur leikið með Brann frá því árið 2005 og verið með sterkustu mönnum liðsins.

Hann var meðal annars í lykilhlutverki þegar að Brann sigraði norsku deildina árið 2007 en samningur hans við félagið var að renna út og því fer hann frítt til Hönefoss.

TV 2 í Noregi segir að Kristján muni fá tvær milljónir norskar krónur í árslaun eða um 44 milljónir íslenskar krónur en Geir Håvard Solvang hjá Hönefoss þvertekur fyrir þetta í viðtali við VG.

Hann segir að Kristján verði vissulega einn launahæsti leikmaður Hönefoss en hann verði þó ekki á meðal launahærri leikmanna í norsku deildinni.

Kristján Örn er 29 ára gamall en hann hefur leikið 44 landsleiki með Íslendingum á ferlinum og skorað í þeim fjögur mörk.

Heimild: VG

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.