Fotbolti.net
08.01.10 - 13:53
Hafliði Breiðfjörð

Patrick Vieira til Manchester City (Staðfest)

Patrick Vieira er farinn til Manchester City.

Patrick Vieira er farinn til Manchester City.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur gengið frá samningum við franska miðjumanninn Patrick Vieira sem kemur til félagsins frá Inter Milan.
Þessi 33 ára gamli leikmaður gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í gær og skrifaði svo undir hálfs árs samning með möguleika á árs framlengingu í dag.

Hann er fyrstu kaup Roberto Mancini til enska félagsins síðan hann tók við í desember.

,,Patrick er heimsklassa miðjumaður með hugarfar sigurvera og mun passa vel inn í þennan hóp,\" sagði Mancini á vef félagsins.

Mancini hafði áður keypti Vieira til Inter árið 2006 og telur að hann geti enn skilað miklu í ensku úrvalsdeildina þar sem hann spilaði áður með Arsenal.

,,Hann þekkir mig og starfsólkið mitt vel og það sem er mikilvægast er að hann þekkir úrvalsdeildna og veit út á hvað hún gengur. Han þarf því ekki mikinn tíma til að aðlagast,\" hélt Mancini áfram.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.