Fotbolti.net
08.01.10 - 13:57
Hafliði Breiðfjörð

Andrea Dossena til Napoli (Staðfest)

Dossena í leik með Liverpool.

Dossena í leik með Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Andrea Dossena hefur verið seldur frá Liverpool til Napoli á Ítalíu en þar gerði hann fjögurra ára samning í dag.
Napoli sem er í fjórða sæti ítölsku Serie A deildarinnar tilkynnti þetta í dag og að leikmaðurinn sé nú samningsbundinn út tímabilið 2013-2014.

Hann er 28 ára gamall og hafði komið til Liverpool frá Udinaese í heimalandi sínu, Ítalíu, á 7 milljónir punda árið 2008. Hann spilaði aðeins 30 leiki með Liverpool og skoraði tvö mörk, sem komu gegn stórliðum Manchester United og Real Madrid á síðustu leiktíð.

Hann á að baki 10 landsleiki fyrir Ítaliíu en spilaði síðast landsleik undir stjórn Roberto Donadoni í október 2007.

,,Ég er ánægður með að geta klæðst treyju Napoli,\" sagði Dossena á vef ítalska félagsins. ,,Ég hef valið stað sem hefur með mikla sögu og mikil áform. Ég get ekki beðið eftir að spila á San Paolo fyrir framan frábæra áhorfendur.\"

Fyrsti leikur Dossena gæti verið gegn Sampdoria á sunnudag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.