08.01.10 - 15:04
Magnús Már Einarsson
Tiago til Atletico Madrid á láni (Staðfest)

Tiago (til hægri) er farinn til Ítalíu.

Mynd: Getty Images

Tiago (til hægri) er farinn til Ítalíu.

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur fengið miðjumanninn Tiago á láni frá Juventus út þessa leiktíð en félagið á síðan möguleika á að kaupa leikmanninn næsta sumar.
Tiago, sem er 28 ára gamall Portúgali, verður formlega kynntur til sögunnar hjá Atletico á mánudag og því er ljóst að hann verður ekki með í stórleiknum gegn AC Milan um helgina.
Tiago lék á sínum til Chelsea en hann kom til félagsins frá Benfica árið 2004.
Hann náði sér ekki á strik hjá Chelsea og fór eftir eitt tímabil til Lyon í Frakklandi.
Tiago gekk síðan í raðir Juventus árið 2007 en á þessari leiktíð hefur hann einungis sex sinnum verið í byrjunarliði og því fékk hann leyfi til að fara.

Heimild: Sky