Fotbolti.net
08.01.10 - 17:14
Magnús Már Einarsson

Owen Coyle tekur við Bolton (Staðfest)

Owen Coyle tekur við Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Owen Coyle hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá Grétari Rafni Steinssyni og félögum í Bolton Wanderers en hann hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.
Coyle kemur frá Burnley þar sem að hann náði frábærum árangri og kom liðinu meðal annars upp í úrvalsdeildina.

Ljóst var fyrir nokkrum dögum að Coyle myndi taka við Bolton en félögin náðu loks samkomulagi í dag.

,,Ég er gríðarlega ánægður með að vera kominn aftur til Bolton Wanderers,\" sagði Coyle sem lék með Bolton frá 1993-1995.

Bolton er sem stendur í átjánda sæti í ensku úrvalsdeildinni en leik liðsins gegn Stoke um helgina hefur verið frestað og því mun Coyle stýra sínum fyrsta leik gegn Arsenal eftir rúma viku.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.