Fotbolti.net
08.01.10 - 18:22
Magnús Már Einarsson

Heiðar Helguson aftur til Watford (Staðfest)

Heiðar skorar með skalla fyrir Watford.

Heiðar skorar með skalla fyrir Watford.

Canon

Mynd: Getty Images

Watford hefur fengið framherjann Heiðar Helguson aftur á láni frá QPR en þetta kemur frá á vef Morgunblaðsins.
Heiðar verður í láni hjá Watford út leiktíðina og félagið á síðan möguleika á að semja við hann til frambúðar.

Heiðar fór til Watford á láni í september og skoraði fimm mörk í tíu leikjum áður en hann kom aftur til QPR í kringum áramótin.

Um síðustu helgi lék Heiðar með QPR gegn Sheffield United í enska bikarnum en nú er ljóst að hann mun fara aftur til Watford.

Leik Watford og Sheffield United, sem fara átti fram á morgun, hefur verið frestað og því mun Heiðar leika að nýju með Watford þegar að liðið mætir Doncaster eftir rúma viku.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.