08.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Tryggvi Guðmundsson til Örgryte (Staðfest)

Tryggvi í snjóbolta.


Tryggvi í snjóbolta.

Tryggvi Guðmundsson hefur gengið til liðs við sænska liðinu Örgryte. Tryggvi hefur verið án félags síðan í haust þegar að hann hætti hjá norska liðinu Stabæk. Hann reyndi að komast á meginlandi Evrópu og meðal annars fékk hann boð um að fara til ítalska liðsins Empoli á reynslu en meiðsli settu strik í reikinginn hjá Tryggva. Hann hittir fyrir hjá Örgryte tvo aðra Íslendinga, Atla Svein Þórarinsson og Jóhann Birnir Guðmundsson en Örgryte endaði í fjórða sæti í sænsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Um síðustu helgi sigraði liði svo Iceland Express mótið hér á landi og verður gaman að sjá hvernig Íslendingunum þremur vegnar með liðinu á næstunni.
