Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 08. mars 2021 10:11
Magnús Már Einarsson
Moyes ræddi við Bjarna um Soucek
Tomas Soucek
Tomas Soucek
Mynd: Getty Images
Tékkneski miðjumaðurinn Tomas Soucek hefur slegið í gegn hjá West Ham síðan hann kom til félagsins í janúar í fyrra. Soucek hefur skorað átta mörk á þessu tímabili og hjálpað West Ham að komast í efri hluta deildarinnar.

Bjarni Þór Viðarsson hjá sjónvarpi Símans ræddi við David Moyes, stjóra West Ham, um Soucek. Bjarni spilaði á sínum tíma undir stjórn Moyes hjá Everton.

„Ég var ráðinn 30. desember svo við höfðum engan tíma. Okkur vantaði kraft og þrek og Tomas Soucek var sá leikmaður sem hafði hlaupið mest af öllum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar," sagði Moyes í viðtalinu,

„Hann var fyrirliði Slavia Prag og skoraði mörk af miðjunni svo hann hafði mikið af því sem við vorum að leita af."

Hér að neðan má sjá Moyes ræða meira um Soucek og leikmannakaup West Ham síðan hann tók við liðinu.

Athugasemdir
banner
banner