Fotbolti.net
08.03.23 - 13:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Carragher drakk 7up og gerði mikið grín - Schmeichel þóttist ekki heyra

Carragher og Gary Neville á Anfield.

Carragher og Gary Neville á Anfield.

Canon

Mynd: Getty Images

Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, var í miklu stuði er hann var sérfræðingur í kringum leikina í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi.
Carragher starfar fyrir sjónvarpsstöðina CBS á Meistaradeildarkvöldum.

Liverpool vann ótrúlegan 7-0 sigur á erkifjendum sínum í Manchester United á sunnudag en Carragher ákvað að stríða Peter Schmeichel, fyrrum markverði United, sem einnig tók þátt í útsendingunni.

Carragher byrjaði á því að fá sér gosdrykkinn 7up svo allir sáu, og svo ákvað hann að búa til orðagrín fyrir Schmeichel.

Schmeichel þóttist fyrst ekki heyra í Carragher en svaraði svo: „Erum við ekki sjö stigum á undan ykkur? Ég hef enn ekki hugmynd um hvernig þetta gerðist - því þetta á ekki að geta gerst. Þetta var vandræðalegt og ófagmannlegt, eins og Ten Hag sagði."

Hægt er að sjá þetta skemmtilega myndband hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.