08.05.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Davið Steinn Sigurðarson í KV (Staðfest)

Lið KV er enn að eflast.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lið KV er enn að eflast.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Steinn Sigurðarson hefur verið lánaður frá Víkingi Reykjavík í KV á lánssamningi sem gildir út tímabilið. Davíð sem er 19 ára miðjumaður hefur verið viðloðandi meistaraflokk Víkings síðastliðin tvö ár en hann gekk uppúr 2. fl. síðastliðið haust.
Davíð hefur æft með KV síðastliðna daga og lék með í æfingaleik liðsins gegn Álftanesi síðastliðna helgi.
,,Við fögnum komu Davíðs til félagsins og með þessum lánssamningi gefst ungum og efnilegum leikmanni kostur á að öðlast dýrmæta reynslu í meistaraflokksfótbolta,\" sagði í yfirlýsingu félagsins.
,,Jafnframt kemur hann með mikil gæði í hóp okkar og bætir og breikkar möguleika liðsins á miðsvæðinu. Davíð er virkilega efnilegur leikmaður sem er bæði góður og öruggur á boltann og smellpassar inn í leikstíl liðsins.\"