08.06.04 - 12:28
Magnús Már Einarsson
Ranieri til Valencia (Staðfest)

Claudio Ranieri hefur skrifað undir tveggja ára samning við Spánarmeistara Valencia. Ranieri tekur við stjórastarfi Valencia af Rafael Benitez sem að er líklega að taka við stjórastarfi Liverpool. Ranieri skrifaði eins og fyrr segir undir tveggja ára samning við Valencia en möguleiki er á að framlengja samninginni um eitt ár.
Ranieri sem að var rekinn frá Chelsea í síðustu viku hefur áður stýrt Valencia en hann tók við liðinu árið 1997. Hann vann spænska konungsbikarinn með liðinu og kom liðinu einnig í Meistaradeildina. Hann yfirgaf Valencia árið 1999 til að taka við Atletico Madrid en þar hætti hann í mars árið 2000 vegna fjárhagsörðuleika félagsins. Ranieri tók svo við Chelsea af Gianluca Vialli í september 2000.
"Ég er kominn aftur heim. Ég er mjög ánægður og hlakka til að þjálfa Valencia aftur." Sagði Ranieri í dag.
Hann er þekktur fyrir skemmtileg ummæli og hann bætti við í dag "Þegar Manuel Llorente (Einn af æðstu mönnum Valencia) spurði mig hvort að ég vildi koma aftur sagði ég að ég kæmi syndandi. Frá London eða Róm"