Fotbolti.net
08.06.12 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Steve Clarke tekinn við WBA (Staðfest)

Steve Clarke tekinn við WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Steve Clarke er tekinn við stjórnvölunum hjá West Bromwich Albion en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í morgun.
Clarke hætti í vikunni starfi sínu sem aðstoðarstjóri hjá Liverpool og hann hefur nú fundið sér nýtt starf.

Clarke, sem er 48 ára, tekur við WBA af Roy Hodgson sem tók við enska landsliðinu á dögunum.

,,Ég er ánægður með að West Brom hafi gefið mér þetta tækifæri og ég er staðráðinn í að nýta það sem best,\" sagði Clarke.

Clarke hefur á ferli sínum verið í þjálfaraliði Newcastle, Chelsea, West Ham og Liverpool en hann mun núna spreyta sig sem knattspyrnustjóri.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.