Fotbolti.net
08.06.12 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Steve Bruce tekinn við Hull (Staðfest)

Steve Bruce tekinn við Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce hefur verið ráðinn stjóri Hull City en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Nick Barmby var rekinn frá Hull í byrjun maí vegna ummæla hans um fjárhag félagsins.

Hull City hefur leitað að stjóra síðan þá og nú hefur Bruce tekið við starfinu.

Bruce var rekinn frá Sunderland í lok nóvember í fyrra en hann var síðan orðaður við Wolves eftir að Mick McCarthy var rekinn í febrúar.

Bruce hefur auk Sunderland meðal annars stýrt Birmingham og Wigan á ferli sínum sem knattspyrnustjóri.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.