Fotbolti.net
08.06.12 - 16:23
Magnús Már Einarsson

Kári Árnason í Rotherham (Staðfest)

Kári Árnason í Rotherham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kári Árnason hefur gengið í raðir Rotherham United sem leikur í ensku D-deildinni en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gær.
Samningur Kára við Aberdeen í Skotlandi rennur út um næstu mánaðarmót og því kemur hann frítt til Rotherham.

,,Það var áhugi frá öðrum félögum en það sem heillaði mig mest voru aðstæðurnar hjá Rotherham og stjórinn,“ sagði Kári við heimasíðu Rotherham.

Steven Evans er nýtekinn við stjórnartaumunum hjá Rotherham eftir að hafa náð aðdáunarverðum árangri með Crawley.

Evans er nagli af gamla skólanum en hann fylgdist með Kára í landsleik Íslands og Frakklands á dögunum.

Kári lék þar í hjarta varnarinnar en Evans ætlar að nota hann á miðjunni hjá Rotherham United.

,,Ég hef samið við strákinn til að nota hann á miðjunni en hann hefur líka leikið sem bakvörður og miðvörður í landsliðinu. Fjölhæfni hans er mikilvæg,“ sagði Evans.

Heimild: Heimasíða Rotherham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.