08.06.17 - 21:47
Arnar Daði Arnarsson
Glódís: Óþægilegt þegar boltinn stoppar í pollum
Auglýsing

Glódís Perla í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Glódís Perla í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við náðum öllu úr þessum leik sem við vildum fyrir utan það að skora,\" sagði varnarmaðurinn Glódís Perla Viggósdóttir eftir 0-0 jafntefli gegn Írum í æfingaleik ytra í kvöld.
Aðstæðurnar voru erfiðar fyrir bæði lið en það rigndi mikið fyrir og á meðan leik stóð.

„Þetta verður erfiður leikur útaf aðstæðunum. Það var erfitt að spila boltanum en mér fannst við ná í seinni hálfleik að spila eins og við vildum. Við hefðum eflaust náð að skora ef þetta væru eðlilegar aðstæður sem er jákvætt fyrir okkur.\"
„Það var sérstaklega óþægilegt þegar boltinn stoppar í pollum, þá verður maður aðeins stressaður en þetta var fínt,\" sagði Glódís.
„Það hefði verið gaman að vinna þennan leik en við verðum að reyna fá sigur í staðin á þriðjudaginn,\" sagði Glódís Perla en landsliðið mætir Brasilíu á Laugardalsvellinum á þriðjudaginn.
„Það verður mjög gaman að prófa nýja kerfið okkar gegn liði í vonandi betri aðstæðum og ná að þróa okkar leik enn betur,\" sagði varnarmaðurinn, Glódís Perla Viggósdóttir að lokum.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.