Guðrún Arnardóttir blómstrar í Svíþjóð þessa dagana þar sem hún varð nýverið bikarmeistari með Hammarby eftir dramatískan úrslitaleik. Hún segist hafa fundið fótboltaneistann á nýjan leik
„Það er ótrúlega gott, mér líður ótrúlega vel og ég finn það að ég er komin með neistann aftur. Gengur auðvitað vel með Hammarby þannig að mér líður bara ótrúlega vel.“
Guðrún og liðsfélagar hennar fögnuðu nýverið bikarmeistaratitli eftir dramatískan úrslitaleik sem fór í framlengingu.
„Þetta var rosalega tense leikur en það er alltaf gaman að vinna titla og við vorum kannski í smá hefndarhug eftir Evrópubikarúrslitin, þannig það var rosalega sætt að fá þann titil.“
Í þeim leik mætti hún einmitt félögum sínum í landsliðinu, Thelmu Kareni og Fanneyju Ingu.
„Mér þykir voðalega vænt um þær en þegar ég spila á móti þeim þá er engin miskunn sýnd.“
„Mér þykir rosalega vænt um þær og dýrka þær sem manneskjur og leikmenn þó þeim þurfi ekkert að ganga alltof vel á móti mér.“
Sara Björk Gunnarsdóttir gekk á dögunum í raðir Hauka eftir glæsilegan atvinnumannaferil. Aðspurð hvort Guðrún sjái sjálfa sig feta sömu slóð og enda ferilinn á Íslandi þegar þar að kemur, segir hún það vel mögulegt.
„Það gæti vel verið, ég er ekki komin svona langt, maður lifir bara fyrir næsta leik. Ég er með tveggja ára samning við Hammarby, byrja á að klára hann og þá sjáum við hvað verður, en það er alls ekki ólíklegt að ég myndi enda ferilinn heima á Íslandi.“
Hvaða ráð gefur Guðrún ungum og efnilegum leikmönnum sem eru að banka á dyrnar með landsliðinu?
„Ég held að það væri bara að þora að vera þær sjálfar. Það er ástæða fyrir því að þær hafa náð þangað sem þær hafa náð. Allar vegferðirnar og allir leikmennirnir eru mismunandi. Það er bara að ná að sýna bestu útgáfuna af sjálfri sér og þá eru allir vegir færir.“

