08.07.04 - 13:07
Magnús Már Einarsson
Roque Junior til Leverkusen (Staðfest)




Brasilíski varnarmaðurinn Roque Junior hefur gengið til liðs við þýska liðið Bayer Leverkusen eftir að hann komst að samkomulagi við AC Milan um að verða leystur undan samningi. Hinn 27 ára gamli Roque Junior kom til AC Milan tímabilið 2000/2001 en honum gekk illa að komast í liðið hjá Ítalíumeisturunum og var á láni hjá Siena og Leeds á síðustu leiktíð.
Junior hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við Leverkusen og styrkir þýska liðið vel.
Aftur á móti hefur Leverkusen leyst Tékkann Jan Simak undan samningi en þessi 25 ára miðjumaður var í láni hjá Hannovar 96 á síðustu leiktíð.
Aftur á móti hefur Leverkusen leyst Tékkann Jan Simak undan samningi en þessi 25 ára miðjumaður var í láni hjá Hannovar 96 á síðustu leiktíð.
