08.07.04 - 20:41
Arteta til Sociedad (Staðfest)

Arteta í leik með Rangers

Arteta í leik með Rangers

Mikel Arteta hefur snúið aftur til Spánar til að ganga til liðs við Real Sociedad. Arteta fer til Spánar á Laugardaginn og skrifar þá undir fjögurra ára samning við liðið.
Arteta sem er 22 ára er Spánverji og hóf hann feril sinn hjá spænska stórliðinu Barcelona. Honum gekk illa að koma sér í liðið hjá þeim og var því lánaður til París St Germain árið 2000. Árið 2002 var hann síðan keyptur til Rangers og á fyrsta tímabili sínu þar unnu þeir skosku þrennuna, deild, bikar og deildabikar. Á síðasta tímabili gekk ekki jafnvel og Rangers unnu ekki neinn bikar. Eftir tímabilið tilkynntu Rangers síðan að Arteta væri til sölu ef gott tilboð bærist í hann og nú í vikunni buðu Real Sociedad 2,6 milljónir punda í hann og var það samþykkt.
"Fyrir nokkrum mánuðum vissi ég að þetta væri möguleiki og ég gerði allt til að láta þetta verða að veruleika." sagði Arteta. "Ég á fjölskyldu hérna og þetta er klúbburinn sem ég hef haldið með alla mína ævi, þegar þetta tækifæri gafst þá var ég ekki lengi að hugsa mig um"