Fotbolti.net
08.07.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn í dag - Barcelona getur fellt nágrannana

Abelardo var rekinn úr þjálfarastól Espanyol í lok júní.

Abelardo var rekinn úr þjálfarastól Espanyol í lok júní.

Canon

Mynd: Getty Images

Það eru þrír leikir á dagskrá í spænska boltanum í kvöld. Meðal þeirra er borgarslagurinn í Barcelona, þar sem Barca fær Espanyol í heimsókn á Camp Nou.
Börsungar geta fellt nágranna sína með sigri í kvöld enda er Espanyol ellefu stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar fjórar umferðir eru eftir.

Barca er aftur á móti í öðru sæti, fjórum stigum eftir toppliði Real Madrid sem er búið að vinna sjö leiki í röð.

Starf Quique Setien, þjálfara Barcelona, er í hættu. Hann þarf að vinna spænsku deildina eða Meistaradeild Evrópu til að eiga möguleika á að halda stöðu sinni við stjórnvölinn.

Fyrr um kvöldið, klukkan 18:30, eru tveir leikir á dagskrá sem hefjast samtímis. Getafe tekur þar á móti Villarreal á meðan Real Betis og Osasuna eigast við.

Getafe og Villarreal eigast við í hörkuslag enda bæði í Evrópudeildarsæti sem stendur.

Betis siglir lygnan sjó á meðan nýliðar Osasuna geta enn reynt að lauma sér í Evrópubaráttuna.

Leikir kvöldsins:
18:30 Getafe - Villarreal
18:30 Betis - Osasuna
20:00 Barcelona - Espanyol (Stöð 2 Sport 2)
Það er ansi heitt undir Quique Setien, þjálfara Barca.

Það er ansi heitt undir Quique Setien, þjálfara Barca.

Canon

Mynd: Getty Images

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla10017
7Alaves10+312
8Athletic9+312
9Celta10+312
10Villarreal11012
11Deportivo10011
12Espanyol11-111
13Osasuna10-1011
14Racing Santander10-1111
15Levante10-310
16Elche10-310
17Vallecano9-89
18Getafe10-109
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.