Tvíburarnir Andri og Brynjar Jónassynir ræddu við Fótbolta.net eftir sigur KFK á Kára í Fótbolti.net bikarnum í kvöld.
Lestu um leikinn: KFK 3 - 2 Kári
„Þetta er bara geggjað, það var alltaf stefnan að reyna komast á Laugardalsvöll og núna erum við einum leik frá því," sagði Andri.
„Við vorum með þá frá fyrstu mínútu, komum slakir úr hálfleiknum og þeir jöfnuðu en svo rifum við okkur aftur í gang og komumst aftur verðskuldað yfir," sagði Brynjar.
Brynjar skoraði eitt af þremur mörkum KFK í leiknum en hafði fyrir það fengið færi til að koma sér á blað. Hann kaus þó að þykjast ekki muna eftir þeim sénsum, heldur einblína á það góða sem gerðist í leiknum.
Andri nefndi óskamótherja í undanúrslitunum. „ÍH, gömlu félagarnir." Þeim bræðrum var nokk sama hvort það yrði í Fagralundi eða á þeirra gamla heimavelli í Skessunni. ÍH mætir KFG í 8-liða úrslitunum á morgun.
Brynjar lék ekki lokakaflann í leiknum þar sem hann var tekinn af velli. „Það er hræðilegt að vera út af, miklu betra að vera inn á. Það var erfið helgi í Eyjunni og svo þetta, þetta var helvíti sætt eftir það." Brynjar tók sér góðan tíma í að yfirgefa völlinn þegar hann var tekinn af velli. „Það var smá leikþáttur hjá okkur, aðeins að æsa í Káramönnum. Ég samt án gríns heyrði ekki að ég væri að fara út af, svo var ég bara skammaður af dómaranum."
Andri talaði um að hann hefði ekki verið stressaður um að Kári myndi jafna leikinn. „Eiginlega ekki, Spánverjarnir okkar og Gunnar Patrik sem kom inn á eiginlega negldu öllu í burtu. Andri keeper er alltaf öruggur. Ég var orðinn svo þreyttur að ég átti ekki séns í framlengingu."
Talandi um Andra markmann, hann skallaði bolta í burtu í lok leiks, var kominn það framarlega að hann gat ekki notað hendurnar.
„Hann var snöggur að hugsa, sá að hann var kominn yfir línuna og skallaði hann í burtu eins og 'prime' Andy Pew."
KFK er komið í undanúrslit og Brynjar nefndi að þegar liðið kæmi sér upp í 2. sæti 4. deildar þá væri liðið að dansa. Liðið situr sem stendur í 3. sæti og fara efstu tvö lið deildarinnar upp í 3. deild. Hvað hefur vantað upp á til að vera enn ofar?
„Við höfum ekki náð að vinna liðið í 1. eða 2. sæti, en við vinnum yfirleitt alla hina leikina," sagði Brynjar.
„Þetta er betri deild en við héldum, öll lið gefa okkur alvöru lið og það þarf að hafa fyrir þessu. Vonandi komumst við á gott skrið og drullum okkur upp," sagði Andri.
Bræðurnir eru 28 ára og léku þeir saman upp yngri flokkana í FH, tímabilið 2014 voru þeir saman í Fjarðabyggð, þeir hittust aftur hjá HK tímabilið 2019, léku tímabilið 2020 saman í Þrótti Vogum, tímabilið 2021 í ÍH og voru þeir hjá Álftanesi í fyrra.
En af hverju voru þeir saman mættir í viðtal í kvöld?
„Hann dró mig, þú baðst Brynjar um viðtal, ég hef aldrei farið í viðtal þannig ég kom með," sagði Andri og brosti. „Það er miklu betri kemestría að vera tveir," útskýrði Brynjar. „Þá er þetta ekki neitt óþægilegt. Þetta er ekki gert oft á Íslandi, væri til í að fá meira af þessu," bætti Brynjar við.
Athugasemdir






















