Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
   þri 08. október 2019 20:22
Brynjar Ingi Erluson
Jón Þór: Vorum miklu betra liðið
Icelandair
Jón Þór Hauksson
Jón Þór Hauksson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins var sáttur með 6-0 sigurinn á Lettlandi í kvöld.

Lestu um leikinn: Lettland 0 -  6 Ísland

Íslenska liðið spilaði á afar erfiðum velli en var þó búið að undirbúa sig undir það. Hann var ánægður með frammistöðu liðsins.

„Leikurinn var frábær og sigurinn var frábær. Það var gleðiefni fyrir okkur að ná að skora þetta mörg mörk og ná að halda áfram við erfiðar aðstæður, erfitt að spila fótbolta og mér fannst við gera þetta vel í 90 mínútur," sagði Jón Þór.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir spilaði bakvörð í dag og átti góðar fyrirgjafir. Hún lagði upp fyrsta markið með einni slíkri.

„Gunnhildur var frábær í þessum leik og virkilega góðar fyrirgjafir og við útfærðum hlaupin okkar vel inn í teig og kláruðum vel. Ég var í skýjunum með það."

„Við vorum miklu betra liðið frá fyrstu mínútu og margt sem ég er ánægður með. Þetta var fagmannleg frammistaða í 90 mínútur. Við erum að kveðja virkilega gott landsliðsár og frábært að enda það með sigri. Hvert mark telur í þessu og förum með fullt sjálfstraust í nýtt landsliðsár,"
sagði hann í lokin.
Slapp
banner
banner