fim 08. desember 2022 16:35
Elvar Geir Magnússon
Verðmiðinn á Man Utd rúmlega tvöfalt hærri en raunverulegt verðmæti
Mynd: Getty Images
Verðmiðinn sem Glazer fjölskyldan hefur sett á Manchester United er rúmlega tvöfalt hærri en raunverulegt verðmæti félagsins.

Sérfræðingar Football Benchmark segja að þrátt fyrir mikla hækkun á hlutabréfaverði í kjölfar tilkynningar í síðasta mánuði um að Glazerarnir séu opnir fyrir tilboðum í félagið sé 6 milljarða punda verðmiðinn ansi hár.

Fyrr á þessu ári var Chelsea til að mynda selt fyrir um 2,5 milljarða punda.

Samkvæmt úttekt þá er verðmæti leikmannahóps Manchester United talið 770 milljónir punda. Leikvangur félagsins, Old Trafford, er talinn þarfnast mikillar endurnýjunar og það sama á við um æfingasvæði félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner