09.01.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Wamberto farinn frá Ajax til Mons (Staðfest)




Brasilíski framherjinn Wamberto hefur yfirgefið Ajax og gengið til liðs við Mons í Belgíu. Ajax leyfði Wamberto að fara frítt þar sem að samningur hans átti að renna út í haust og því borgaði Mons sem á í fallbaráttu ekki krónu fyrir kappann. Kappinn sem var kallaður “Wampie” af stuðningsmönnum Ajax lék alls 156 leiki og skoraði 36 mörk fyrir félagið en hann kom þangað 1998.
